
Nýtt félagsstarf í Vestmannaeyjum
Komdu, hittu fólk og eigðu góða stund
Saman erum við virkari. Opið félagsstarf fyrir fólk sem langar að hitta aðra.
- kl. 12–14Þriðjudagar
- kl. 14–16Fimmtudagar
- 10–15Hafa þegar mætt

Enginn á að sitja einn heima
Það er hópur fólks í samfélaginu okkar sem hefur einhvern veginn dottið á milli kerfa. Þetta er fólk sem hefur áður verið á vinnumarkaði en hefur þurft að draga sig í hlé vegna veikinda, slysa, skertrar starfsgetu eða annarra aðstæðna.
Félagsleg tengsl geta minnkað og einangrun myndast. Við erum nokkur í Vestmannaeyjum sem höfum ákveðið að breyta þessu og erum að koma á fót opnu félagsstarfi.
Fyrir þig, ef þig langar að hitta fólk
Starfið er fyrir fólk með skerta starfsgetu, langvarandi veikindi, áunna fötlun eða aðrar aðstæður sem hafa orðið til þess að það hefur dregið sig út úr samfélaginu. Sérstaklega fyrir þau sem nýta ekki önnur félagsleg úrræði og sitja jafnvel ein heima.
Þú þarft ekki að vera í neinu sérstöku formi, hafa ákveðna færni eða tilvísun. Það er nóg að langa til að hitta fólk og eiga góða stund.
Það sem við gerum saman
Við höfum húsnæði í safnaðarheimilinu og góðan stuðning frá Vestmannaeyjabæ. Félagsráðgjafi hjá bænum er tengiliður. Þegar hafa 10–15 manns mætt.
Hugmyndir og óskir þátttakenda móta starfið. Allir hafa eitthvað fram að færa.
- Kaffistundir
- Handverk og föndur
- Spil og bingó
- Hreyfing
- Fræðsla
- Sameiginlegar máltíðir
- Ferðir og ýmsir viðburðir
Hvenær og hvar
Við hittumst í safnaðarheimilinu tvisvar í viku.
- Þriðjudagar
- kl. 12–14
- Fimmtudagar
- kl. 14–16
- Staður
- Safnaðarheimilið
Vestmannaeyjar
Taktu þátt
Þekkir þú einhvern sem gæti haft gagn og ánægju af starfinu? Láttu viðkomandi vita. Við viljum líka heyra frá þeim sem vilja taka þátt, leggja til hugmyndir eða aðstoða sem sjálfboðaliðar.
Hafðu samband
Lilja Ólafsdóttir, sími 893-3898. Ingveldur Theodórsdóttir, sími 868-2139. Þú finnur okkur líka á Facebook: „Öryrkjar í Eyjum“. Við hlökkum til að sjá þig!